Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar

Feb 05 2024 5
Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar Podcast artwork

Rabbrýmið er opið hlaðvarpsstúdíó Bókasafns Hafnarfjarðar þar sem bækur og blaður hittast yfir hangandi hljóðnemum og allir eru til í spjall. Rýmið er opið öllum þeim sem eru með gilt bókasafnskort og er hægt að panta upptökutíma á bit.ly/rabbrymid Í Rabbrýminu er allur búnaður sem þarf til upptöku og vinnslu hlaðvarps til staðar. Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref er starfsfólk til staðar til að fara yfir formsatriðin og aðstoða fyrst um sinn. Skúffuskáld, skoðanapésar, grúskarar, bókabéusar og allir þeir sem hafa ótakmarkaða þörf til að koma sér út í kosmósið - þið eruð hjartanlega velkomin í Rabbrýmið. Fyrir upplýsingar um aðstöðuna og aðrar spurningar ekki hika við að senda tölvupóst á [email protected]